Komnir með vor í pung. :)
Fimmtudagur, 12. apríl 2012
Er hann að fara að snúa sér? Kveðja frá Færeyjum.
- Allinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýji stíllinn keisarans.
Miðvikudagur, 21. mars 2012
Jæja þá er tímabil allra tímabila lokið. Loðnuvertíðin. Fiskaðist vel og kláruðum við þetta með þónokkrum stæl. Heildaraflinn hjá okkur var 18.082 tonn og þykir það í betra lagi. Sérstaklega í hlutfalli við síðastliðin ár. Þegar að þessi orð eru skrifuð eru allir bátar hættir loðnuveiðum.
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum febrúarmánuði nam alls 312.221 tonni sem er umtalsvert meira en í febrúar í fyrra þar sem aflinn var 210.005 tonn. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.
Þá er komið að næstu fiskistofni sem fær að finna fyrir aflaklónni Aðalsteini. Svartkjaftur á yndislegasta veiðisvæði í heimi Rockhall. A.t.h. kaldhæðni. Á rockhall er sjaldan ein báran stök. Við fengum aðeins að finna fyrir því í byrjun þessara veiðiferðar. Það er hasar. Í fyrsta holi misstum við pokann í undirdjúpið og þrátt fyrir mikla leit þar sem nýja infrared hitamyndavélin fékk að njóta sín fundum við hann ekki aftur. Við vorum ekki eins farsælir og þeir á Sigurbjörgu ÓF.
Togarinn Sigurbjörg ÓF, sem Þormóður rammi hf. gerir út, varð fyrir því óhappi í yfirstandandi veiðiferð að missa pokann frá trollinu í slæmu veðri. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist pokinn ekki aftur upp, þó svo staðsetning hans væri alveg ljós.Það var svo s.l. miðvikudag að pokinn kom í troll Sturlaugs H. Böðvarssonar AK og reyndist hann lítið laskaður. Troll Sigurbjargar er því komið í samt lag aftur. Frá þessu er sagt frá á rammi.is
Það þýðir lítið að grenja yfir höltum hundi og eftir nokkur vel valin blótsyrði var varapokanum skellt á og við erum eins og menn segja á góðri engil-saxnesku: ,,back in it". Við erum búnir að hífa 3 ágætis hol og við erum búnir að fylla neðsta lagið í báðum frystilestinum.
Slúðurpakki dagsins er í boði:
Þessi fyrsta auglýsing er ókeypis en við erum að leita að nýjum sponsor fyrir síðuna. Hafi þitt fyrirtæki áhuga á að stýra slúðrinu á vinsælustu skipasíðu Ísland sendið fyrirspurn á ajvinnsla@sjopostur.is
Fer þetta klúbbadæmi ekki að vera þreitt? Eftir misheppnaða tilraun veiðifélagsins Bloodgroup hafa sömu forsprakkar ákveðið að stofna fjórhjólaklúbb. Það virðist litlu máli skipta hvort að menn eigi fjórhjól eða hafi bílpróf yfir höfuð. Allir velkomnir.
Daði Þorsteinns er nýbúinn að landa samning við stórfyritækið Gilette. hann mun ekki vera andlit nýrrar auglýsingaherferðar heldur mun hann vera tilraunadýr fyrir nýja frumgerð af 8 blaða rakvél sem er á tilraunastigi þessa dagana.
Daníel virðist vera nýbúinn á Dale Carnegie námskeiði en þessi léttlyndi bryti er búinn að setja saman 5 ára plan og verður hann með námskeið fyrir skipsfélaga sína fljótlega.
Talandi um námskeið þá hyggur Heiðar á lífleikni námskeið með Herði Haraldssyni. Það fer fram í Kópavogi og mun Runólfur Ómar ásamt æskuvini sínum Geira Golden vera með sérstakan gestafyrirlestur.
Áhöfninn vill koma kveðjum til uppáhaldsútvarpsmanns okkar honum Gissuri Sig á Bylgjunni og erum við tilbúnir við síman allan sólarhringinn vilji hann taka púlsinn á okkur.
Sæli er á leiðinni á Liverpool leik og hefur greiningadeild Péturs sett stuðulinn 1/35 að hann verði vitni að marki.
---
Af öðrum fréttum er það helst að
Norska rannsóknastofnunin Nofima hvetur norska síldarframleiðendur til þess aðnotfæra sér tækifæri sem skapast hafi vegna aukinnar neyslu á sjávarafurðum í Brasilíu.Markaðurinn er talinn munu vaxa úr 1,8 milljónum tonna í 2,4 milljónir tonna innan fárra ára.Nofima telur að unnt sé að selja síldina einnig í smærri hverfisverslunum og sér þá þannmöguleika að norskir síldarsalar fái innlenda aðila í Brasilíu til þess að sjá um að þíða síldina uppáður en hún fer í búðirnar.
Skýrt er frá þessu á vefnum fis.com
Á hverju ári hafa útvaldir fengið þau forréttindi að fara og skoða erlenda markaði og hafa verið farnar ferðir til Hvíta-Rússlands og Póllands. Spurningin er hvort að Benedikt útgerðastjóri fari nú ekki að bjóða manni til Brasilíu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Reykjavík - Tokyo
Mánudagur, 20. febrúar 2012
Komið sælir lesendur góðir (og slæmir).
Loðnuvertíð er í hámarki núna og er sá stóri blái núna rétt fyrir utan uppáhaldseyju allra landsmanna, Vestmannaeyjar. Það má segja að loðnan sé að halda sína eigin þjóðhátíð í augnablikinu. -Góð veiði.
Loðnan er núna í sínu árlega ferðalagi á þvert yfir suðurlandið þar sem að hryggninjastofninn hittist og brýst þar út eitt allsherjar kynsvall þar sem að boðberar nýrra kynslóðar keppast um að búa nægilega vel að komandi loðnum. Loðnustofninn er búinn að vera mjög sterkur í ár og loðnufrysting hafin með látum. Vel gert.
Konichiwa, þýðir góðan daginn á japönsku, þetta lærði ég þegar að ég var að horfa á einhverja samúræja ræmu um daginn, Japanir eru góðir í mörgu sem þeir taka sig fyrir, það er gott að vita að japanskt/íslenska samstarfið sé að skila arði til þjóðarinnar. Ég átti nýlega í viðskiptasambandi við Japana og hann var mjög heiðarlegur þótt við værum ekki endilega sammála um verðið. Ég held að margir í flotanum eigi sögu af skemmtilegri samningaviðræðu við japana. Ég á allavega nóg.
Loðnuvertíðin er ólik öðrum veiðiskap, ef ég ætti að koma henni í samhengi við eitthvað sem að er skiljanlegt, þá myndi ég segja að ef að fiskiveiðar væru kynlíf þá væri loðnuvertíðin sjortari. Hún tekur fljótt af, það er mikið um svita, hávaða, öskur og læti meira að segja það að kasta nótinni tekur stuttan tíma í samanburði við trollið. Kolmunaveiðar eru meira svona eins og tantra, þar er skipt á hraða og ákefð fyrir aukinn tíma og næmni.
Hvaða mynd er framan á tíkalinnum? Næst þegar að þú borgar með honum hugsaðu þá um loðnuna og áhrif hennar á okkur.
-Aðalsteinn Jónsson SU 11
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hafið gefur, hafið tekur.
Fimmtudagur, 2. febrúar 2012
Fyrir þá sem misstu af þessu viðtali í gær, þá er hægt að sjá það hérna fyrir neðan. Þetta er epísk frásögn af sjóslysi. Mér varð hugsað til ykkur strákar. Þetta sýnir enn og aftur mikilvægi vina okkar hjá Sæbjörgu, Slysvarnaskóla sjómanna. Vona þið hafið það gott sjómenn landssins.
Be safe.
http://www.ruv.is/eirikuringi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kóngurinn er mættur aftur, lengi lifi kóngurinn hipp hipp...
Þriðjudagur, 10. janúar 2012
Kóngurinn er mættur aftur, þá er ég ekki að tala um Thierry Henry sem var í þessum rituðu orðum að setjann á móti Leeds. (Davíð og ómari til mikils móða)
Nei ég er að tala um skipabloggskónginn. Ég vil byrja á því að óska aðdáendum mínum gleðilegs "nýss" árs og færa þeim þakkir fyrir de gemle.
Seinasta ár var einstaklega gjöfullt fyrir okkur strákana á Aðalsteini og var þetta metár í aflaverðmæti. Þar kemur makríllinn einstaklega sterkur inn. Eru pyngjur okkar núna vel útleiknar og stefnum við ótrauðir á að reyna að gera betur á þessu herranns ári 2012.
Við þjófstörtuðum nýja árinu á því að hefja veiðar við námunda frændur okkar Færeyjingana og erum að eltast við svartkjaftinn í brælu og böli. Hefur þetta gengið frekar brösulega og standa aflatölur einhversstaðar nálægt á að annað hundrað tonn.
Það er komið nýtt teljara og merkimiða system þannig að ég get ekki sagt ykkur nákvæmar aflatölur úr þessari tölvu þar sem þessi orð eru hripuð niður. Þessi setning er langt frá því að vera "málfræðilega" rétt en ar sem lesendur AJ B. eru flestir vel yfir meðalgreind þá ætti það ekki að vefjast fyrir ykkur.
Ég hóf þetta á fótboltanum og held að ég haldi mig við hann eitthvað meira. Það kom upp skemmtilega uppákoma á kaffistofunni sem mér fannst áhugaverð þannig að ég ætla að reyna að búa eitthvað til úr henni.
Hefst þá sagan:
,,Eigi skalt þú falsguði tilbiðja" sagði æðstiklerkurinn við Martein hinn mislanga er hann gekk inn með skínandi bikar sinn og lagði fyrir framan söfnuðinn.Hinn mislangi svaraði því að honum væri frjálst að blóta hvaða goði sem honum sýndist og virti að vettugi boðskap hins heilagra Baddínusar. Spá ég þér og þínum heiðnu siðum falli, falli segi ég! svaraði Baddínus og sló stafi sínum í jörðina. Í sömu andrá birtist uppúr jörðinni sjö fingra kolkrabbi. í fyrstu andrá virtist þessi furðuskepna vera friðsamleg og ekki líkleg til ofbeldis. Þegar þessi fingrafimi krabbi kom auga á skínandi könnu hins mislanga þá reiddist hann mjög, var allur rauður og þrútinn tók loks hinn gyllta bikar hóf hann á loft og lét hann skella í jörðina með miklum sprengingum og látum með þeim afleiðingum að hann brotnaði í fjóra bita. Marteini var svo brugðið að hann kraup á kné og sagði við heilagan Baddínus: "Ó hve lágt ég hef lagst, fyrirgef mér ó þú mikli meistari því í græðgi minni hef ég látið glepjast af gylliboðum, fyrirgef, fyrirgef." Baddínus hvíslaði þá í eyra hins mislanga nokkur vel valin orð og tók af honum bláu skikkjuna sem hann hafði borið frá blautu barnsbeini og lét hann fá aðra rauða í staðinn. Uppúr því urðu þeir hinir mestu mátar.
The End.
---------------------------------------------------------------------------------------
Boðskapur sögunar. "dramb er falli næst" og "Baldur hugsaðu þig tvisvar um áður en þú kemur með aðra könnu um borð" :)
þangað til þarnæst .
kv. Heinkó
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Aðalsteinn Jónsson, fallegasta áhöfn landsins. (staðfest)
Sunnudagur, 20. nóvember 2011
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hrekkjalómar og önnur ofurmenni.
Föstudagur, 18. nóvember 2011
Í ljósi umræðunar sem hefur skapast vegna fávitana á Erlingi KE-140 Þá ákvað ég að taka sjáfan í væga naflaskoðun. Þurka af kuskið og gera upp gamlar syndir. Flestir sjómenn hafa nú slegið á létta strengi og þótt húmorinn sé oft í grófara lagi þá held ég að þetta atvik með 13 ára strákinn sem fór í sjóferð með föður sínum sé nú bara algert einsdæmi.
Sjálfur fór ég oft með föður mínum og voru menn ekkert nema alrennilegheitin við mig og gerði þetta mig að betri manni. Það er löngu vitað að austfirðingar eru mun betur gefnir og geðbetri en villimannasamfélagið sem fyrirfinnst þarna á Reykjanesinu. Það hlýtur að vera eitthvað í vatninu þarna, kannski tengist þetta eitthvað viðveru bandaríska hernum fjölda ára. Hugsanlega einhverskonar úrkynjun eða öfgafullar hernaðartilraunir. Hver veit. Það hlýtur allavega að vera einhver góð ástæða að bæði peningasugan Árni Sigfússon og limsugan Vala Grand komi bæði frá þessu rokrassgati syðra.
Þá að öðru. Eins og alþjóð hefur frétt í gegnum fréttaflutning nýlega þá voru fjórir fávitar nýlega dæmdir í skilorðsbundið fangelsi fyrir einelti og almennan perraskap. Þá er mér hjarta næst að biðja nokkra aðila afsökunar á framferði mínu í gegnum tíðina.
Fyrst vil ég biðja áhöfnina á Faxa RE afsökunar en fyrir mörgum áður var ég ásamt vini mínum ráðinn sem afleysingaháseti á Kolmunatúr. Þar í fyrsta matmálstíma mættum við með uppblásnar kynlífsdúkkur í borðsalinn beint frá Benidorm og lögðum fyrir þær diska og glös eins og ekkert væri sjálfsagðara. Voru þetta fyrstu kynni okkar af áhöfninni og í seinni tíma sé ég núna að þetta vöru mistök og biðst ég enn og aftur afsökunar ef ég hef sært blygðunarkennd þeirra og vona að þeir finni stað í hjarta sínu til að fyrirgefa okkur strákapörin.
Þá vil ég einnig biðja hann Harald Harðason afökunar því að "einu sinni þegar ég var ég ungur maður" þá vorum við skipsfélagar á nótaskipinu Guðrúnu Þorkellsdóttur. Ég man eftir þessu augnabliki eins og það hafði gerst í gær. Þetta eru nú sennilega rúm tíu ár síðan. Þá vorum við í stakkageymslunni að bíða eftir að nótinni væri kastað aftur. Það var vont í sjóinn og stakkageymslan angaði af loðnu, svita og reykingastybbu. Andrúmsloftið var þrungið enda var veiði búin að vera slæm þetta kvöldið og menn kaldir og þreyttir. Ekki man ég alveg hvernig þessi atburðarás æxlaðist en þannig var mál með vexti að mér og Haraldi kom eitthvað saman þessa örlagaríku nótt. Það endaði ekki betur en að eftir mikil áflog þá endaði Haraldur á gólfinu fastur undir bekk með mig ofaná á sér: ,,gefstu upp? Gefstu upp?". Haraldur að lokum sá að hann átti við ofurefli að ráða og sökum þess að honum hafði skrikað fótur gat hann engan veginn staðið upp og neyddist þess vegna til að játa ósigur sinn fyrir mér og öðrum áhafnarmeðlimimum sem horfðu dolfallnir á. Þetta var eins og úr gamla testamentinu árekstur Davíð og Golíats. Ódiseyfur á móti Kýklópanaum þar sem vit vóg þyngra en vöfðar.
Sumir myndu kanski halda því fram að saga þessi sé uppspuni eða ýkjur. Vísa ég þeim fullyrðingum algerlaga til föðurhúsana og afahúsana ef því er að skipta og vitna í mín fyrri orð. "einu sinni þegar ég var ég ungur maður". Ofbeldi leysir hinsvegar engan vanda og vil ég nota tækifærið aftur og biðja hann Halla minn afsökunar á framferði mínu fyrr um árið og til að grafa stríðsöxina er ég með myndband með laginu okkar Halla eftir eilífðarhippan og söngskáldið Bjartmar Guðlaugs. En þar sem ég fann ekki lagið "Engisprettufaraldur" sem er sennilega eitt besta lagið hans verður "Járnkarlinn" að diga
http://www.youtube.com/watch?v=cdBPRSfdQOE&feature=results_video&playnext=1&list=PLE1FD412CBE3A7185
Það eru nú fleiri hrekkjalómar um borð, einn sá allra skæðasti er Hafsteinn Bjarnason en hann hefur þróað grikki sína bakvið tjöldin í fjöldamörg ár og er ferilskráin núna í fimm bindum sem verða sennilega gefin út seinna meir. Ritsafnið hefur fengið vinnuheitið "Hafsteinn Bjarnason: Líf mitt og lygilegir hrekkir. Stefnir ritstjóri Aðalsteins Jónssonar að gefa það út samhliða "Brandarabók Baldurs" og "Flækjubókinni" umtöluðu. Bókin hans Hafsteins er meira svona fræðirit þar sem upprennandi prakkarar geta séð teikningar og hugmyndir að ýmsum útfærslum af sprelli og glensi. Vélskóli Íslands sem núna heitir Tækniskólinn er þegar búinn að gera forkaupspöntun fyrir 200 bindi og er á námskrá þeirra árið 2012-2013. Þar þurfa nemendur til að útskrifast að geta hannað og smíðað mekkanóa ýmsa þar sem notagildi er bæði til gagns og gaman. Þar má t.d. nefna kartöflubyssu, sprengju bolla og heimatilbúnar talíur.
Tækniskólinn gerir sér hinsvegar grein fyrir því að grín getur farið útí öfga og menn eru mis hörundsárir og þess vegna hafa þeir ákveðið að bæta við gesta fyrirlesara sem mun fara yfir ákvarðanir og afleiðingar prakkarastrika. Þar kom aðeins einn maður til greina. Sá sem hefur sennilega orðið fyrir barðinu á fleiri hrekkjum en George Wilson nágranni Denna Dæmalausa. Það er silfurrefurinn og nýsleginn fjórhjólaeigandi Haraldur F. Skemmst er frá því að minnast þegar að alþjóð sá hann verða fyrir barðinu á Daníel og Ardísi hans Sölva. Daníel vopnaður myndavél og Ardís með grímu sem var til þess fallið að áhorfendur skemmtiþáttarinns á skjá einum með Ladda voru vitni af því þegar Haraldi var brugðið all hressilega og vann hann fyrstu verðlaun fyrir píkuskræk sem mældist 135 DB.
Við erum núna á heimleið þegar þessi orð eru skrifuð búist er við því að vera með smekkaðann bát af síldarflökum og ættum við að sigla inn um fjörðinn fegursta á sunnudag næstkomandi.
Ég vil koma sérstökum þökkum til Þórhalls Dan fyrir tyggjó gjafir sem ég hef þuggið með þökkum undanfarna daga. Í þakklætisskyni samdi ég þessa vísu.
Ellefu ellefu ellefu tólf
baráttan við lummur hófst
Ef ei Dan minn styrktar hrólf,
væri ég fallinn, alveg ljóst.
---
*Fréttaskot, Japaninn um borð var að setjast niður og gæða sér á sviðakjamma, ég er að hugsa um að hætta skriftum og fylgjast með herlegheitunum.
K.V.
Heinkó.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fiskiorgía.
Laugardagur, 12. nóvember 2011
Jææææææjjaaaaaaaaaaa. Síldarbanarnir á AJSU Ellefu eru mættir á miðin brakandi ferskir eftir seinasta túr þar sem að Tandrabergsstrákarnir tóku á móti smekkfullu skipi af eðal flakaðri síld. Við erum núna í þessum skrifuðu orðum að eltast við síldina norður eftir en það er komin bullandi gredda í hana og flykkist hún norður til að eðla sig. Stefnum við að verða komnir á miðin um hádegi á morgunn.
Stjórnandi leitarinnar er aflakóngurinn Ómar Sig en hann kemur brúnn og sætur eftir aðra sjóferð en þar var hann að vísu ekki skipstjóri, þess heldur var hann farþegi á skemmtiferðaskipi í karabíska hafinu eða kyrrahafi man það ekki alveg það var allavega minni bræla þar heldur en í heimahafinu er kennt er við borgina Atlantis sem sökk eins og frægt er. Mega síldarnar nú vara sig því eitt er víst að þær sleppa ekki úr aflaklónni á Ómari.
Einn laumufarþegi fannst um borð og þá er ég ekki að tala um Binna vél, Erum við núna með Japana sem verður með gæðastjórnun á roðlausum síldarflökum sem við seljum til austurlanda. Undirritaður er mikill áhugamaður um japanska menningu og siði, þá sér í lagi samúræja og sverð og hygg ég á að spyrja hann spjörunum úr. Hinsvegar komi í ljós að hann sé A: Ekki vel að sér í fræðum þessum eða B: Ekki vel máli farinn í enskri tungu, neyiðst ég til að taka hann í hina víðfrægu "silent treatment" sem fyrirmyndin mín silfurrefurinn Fribbster hefur fullkomnað í gegnum árin mönnum til mikillar á og óánægju.
Svo bregðast krosstré sem önnur því að skákséníið Agnar Árna tapaði sinni fyrstu skák hér um borð, Einvígið milli hans og Heiðars hefur verið kallað einvígi aldarinnar og þykir minna mikið á Fisher - Spasski í höfða um árið.
Skotveiði félagið "Bloodgroup" hefur tekið saman rjúpnaveiðitölur þetta árið og er Ingi Ragnarsson skarpasta skyttan og leiðir töfluna þetta árið. Mikil ágangur rjúpna hefur einmitt sést á næststærstu einkajörð á Íslandi, Músalæk við Vöðlavíkurheiði. Náttúruvernadarstofnum telur að 40-45% af austfirska stofninum sé með lögheimili þar. Hægt er að sækja um veiðiheimild á þessari gjöfullu landspildu og er áhugasömum bent á netfangið hjá Guðna mussi2@simnet.is.
Sigurður Á eða títt nefndur Baddi var 1. stýrimaður í seinasta túr og fær hann margar fjaðrir í hattinn fyrir "do it yourself" vinnuviðmót sem hann sýndi. Þetta er eitthvað sem starfsbræður hans ættu kannski að taka til fyrirmyndar enda snýtti hann þeim all verulega.
Það styttist í jólin og er líklegt að við munum koma eitthvað saman, allavega skemmtilega fólkið sem er í starfsmannafélaginu, fýlufélagið er ekki líklegt til afreka. Þar munum við sennilega borða okkur sadda, drekka óheyralega mikinn mjöð hlægja og hafa gaman af.
Ég veit ekki hverju ég meira að bulla í ykkur lesendum góðum sem virðist bara fjölga þannig að eitthvað hlýtur maður að vera gera rétt. Þið eruð hinsvegar greinilega hrædd við að tjá ykkur og er ég eiginlega búinn að gleyma því að það sé hægt að tjá sig hérna líka og alveg hættur að kippa mér upp við það þó það sé enginn að kommenta.
Það er fátt um fína drætti í myndum þannig að ég tók saman nokkrar gamlar og fór yfir nokkra nýliðna atburði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fusi Takisima
Laugardagur, 15. október 2011
Hæja!
Við erum komnir aftur í samband við umheiminn eftir smá bilun í gervihnattamótakara. Mikið álag var víst á skrifstofunni þar sem að áhyggjufullar eiginkonur hringdu til að athuga með sína menn og hversvegna þeir höfðu hunsað tilkynningaskylduna :)
Sölvi er mættur aftur úr fæðingarorlofinu og er hann hæstánægður með að vera kominn aftur og biður að heilsa öllum aðdáendum sínum á netinu.
Við erum nýbúnir að slaka trollinu þegar að þessi orð eru skrifuð og höfum við ekki híft neitt en sem komið er. Þórhallur er í brúnni og ef ég þekki hann rétt verður hann ekki lengi að starta þessu partýí þannig að við komumst sem fyrst aftur í heimahöfn í faðm fjölskyldu og vina.
Þá að mannlífsfréttum af göngunum. Grétar Ómars skartaði nýju skeggi sem að rakarameistarinn Haraldur Eff. Stíll þessi hefur ekki fengið neitt nafn en ég ákvað að gefa því vinnuheitið Don Juan Rapero eftir frægum spænskum rakarameistara.
Höldum okkur á aðþjóðlegum nótum þá fékk bílamógullinn Fúsi nýtt japanskt gælunafn þegar að var verið að hringja í hann inní borðsal. Ég ætla að reyna að fara yfir atburðarásina og vona að það verði ekki "lost in translation" því að þetta er alla vegna bráðfyndið þegar að kokkurinn segir frá þessu sjálfur. Ég mun gera mitt besta til að gera þetta glaðlegt á prenti.
Byrjum leikþáttinn! :)
Ring* ring*
Halli (Öldu): "Getur Fúsi tekið símann?"
Daníel (Fríðu) "Ha?"
(Mikil læti í vinnslunni geta gert símasamskipti milli hæða oft erfið)
Halli (Öldu): "Getur Fúsi tekið símann?"
Daníel (Fríðu) "Ha? Fushi Takeshima? Hvaða Japani er það?"
Halli (Öldu):"Japani? Ha?"
Halli (Öldu):"Er Fúsi þarna?"
Daníel (Fríðu):"Já hann er hérna"
Fushi Takeshima: "Halló!"
--------------------------------------------
Internatjonall bragurinn heldur áfram og eru sennilega fárir jafn alþjóðlegir og Þórarinn og viljum við strákarnir óska honum til hamingju með giftinguna og óskum honum og Selmu alls hins besta í framtíðinni.
Þar til næst.
Kv. Allinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Cold as ice.
Föstudagur, 30. september 2011
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
"Þetta er svona ákveðinn gæðastimpill !"
Miðvikudagur, 24. ágúst 2011
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Pressublogg
Miðvikudagur, 20. júlí 2011
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Séð og heyrt.
Mánudagur, 27. júní 2011
Bloggar | Breytt 28.6.2011 kl. 20:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fyrsti túr eftir sjómannadag.
Sunnudagur, 12. júní 2011
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gimme sexý
Miðvikudagur, 20. apríl 2011
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gólandi glæpamenn
Fimmtudagur, 24. mars 2011
Bloggar | Breytt 25.3.2011 kl. 09:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Landleið
Miðvikudagur, 23. febrúar 2011
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
loðnuvertíð 2011
Laugardagur, 19. febrúar 2011
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
How´s your anus?
Miðvikudagur, 26. janúar 2011
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Súr Pungur
Föstudagur, 21. janúar 2011
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)



Augnablik - sæki gögn...










